Worlds greatest SKJÁTUR

Ég elska þessar skjátur!!

31.03.2008 17:37:57 / skjata

Ameríka í dag!

...þessi mánudagur er algjör letidagur eins og flestir dagar eru orðnir hjá mér;) En ég er búinn að liggja á YOUTUBE og horfa á americas next top model, sem eru allir þarna inni! En ekki það að þessir þættir séu eitthvað góðir "uppbygingarþættir" þeir eru mjög niðurlægjandi fyrir þessar stelpur, en samt svo geðveikt gaman að horfa á þá!! Svo er Tyra Banks bara svo heit;) Er einhver að fylgjast með þessum þáttum núna? allavega er ég svo að fíla Dominic, hún er svo falleg og flott! ég vona að hún vinni.

En svo annað, ég var að horfa á Tyra Banks show á Youtube, og þar voru gestir hjá henni, til dæmis 18 ára klámmyndastjarna og 14 ára vændis"kona" , svo var líka maður sem breytti sér í konu, hún(hann) kom bara nokkuð vel út úr aðgerðinni og er rosalega falleg kona í dag, stelpur sem voru svo sjúklega ofbeldisfullar að þær gátu ekki tjáð sig nema með ofbeldi og lömdu bara allt sem hreyfðist nánast, mér fannst Tyra samt bara alveg eins og Oprah kíkið á þetta ef ykkur leiðist,það er gaman að fylgjast með þessu öllu saman....

Svo er það þetta myndband sem er svo æðislegt!! Þar sem hún svarar fyrir sig fyrir ömurlegar myndir sem hafa verið teknar af henni þar sem hún stendur ekki í réttu stellingunum á myndinni.....en allavega ýtið HÉR til að horfa á myndbandið;)
...en svona er Ameríka í dag;)

Gestný!


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Myndir 2007-2008
Leitarbox